Skilmálar
1. Skilgreining
Seljandi er Yerba Mate sf.
Kennitala: 431123-1500
Heimilisfang: Ásgarður 75, 108 Reykjavík
Netfang: yerbaice@gmail.com
- Yerba Mate sf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
2. Afhending vöru
- Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun.
- Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
- Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef að varan er uppseld.
- Eðlilegur afhendingatími vöru eru 1-4 virkir dagar frá því að pöntun hefur verið staðfest og er það mismunandi eftir vöru.
- Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti og Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts og Dropp um afhendingu vörunnar. Yerba Mate sf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Yerba Mate sf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
3. Pöntun
- Pöntun eru bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun.
- Kaupandi fær senda staðfestingu á kaupum þegar pöntun er skráð. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.
- Seljandi er einnig bundinn til að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar.
4. Verð á vöru og sendingarkostnaður
- Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti og Dropp, á pósthús, dropp-afhendingarstaði og einnig beint heim að dyrum. Sendingarkostnaður er breytilegur eftir staðsetningu og sendingarmáta.
5. Upplýsingar
- Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni.
- Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.
6. Verð
- yerbaice.is áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og undangenginnar tilkynningar.
- Villur í verði geta orðið til fyrir slysni og eru ekki bindandi fyrir yerbaice.is og er okkur heimilt að breyta því án frekari útskýringa
- Verðhækkanir sem og verðlækkanir er eiga sér stað eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu.
- Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega.
- Öll verð eru gefin upp í Íslenskum krónum og með virðisaukaskatti.
7. Gölluð vara
- Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
8. Að skipta og skila vöru
- Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Þetta varir ekki við yerba mate, einungis bolla, rör og hitabrúsa. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
9. Greiðsla
- Við tökum á móti: VISA og Mastercard í gegnum verifone, einnig er hægt að greiða með Netgíró.
- Ef að sölu hefur orðið og vara ekki fáanleg, er kaupanda boðið uppá endurgreiðslu, aðra sambærilega vöru eða að bíða eftir að vara verði fáanleg.
10. Póstsendingar Innanlands
- Allar vörur sem eru sendar fara með Íslandspósti eða dropp.
- Um leið og sending er farin frá seljanda er hún á ábyrgð kaupanda.
- Seljandi og kaupandi geta samið sérstaklega um tryggingu á sendingu og þarf kaupandi sérstaklega að biðja um það hjá: yerbaice@gmail.com
11. Póstsendingar til útlanda
- Ekki er hægt er að panta frá útlöndum akkúrat núna.
12. Yfirferð á vörum
- Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga.
- Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda.
13. Réttur við galla
- Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð eða nýja vöru.
- Tilkynning á galla verður að berast skriflega til yerbaice@gmail.com. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast.
- Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.
14. Persónuvernd
- yerbaice.is fer með persónuupplýsingar í samræmi við nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga
- Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni yerbaice.is og hefur enginn nema eigendur vefsins og umsjónarmenn hans aðgang að þeim. Í engum tilvikum eru persónuupplýsingar afhendar þriðja aðila. Við kaup á vöru eða þjónustu veitir viðskiptavinur yerbaice.is samþykki sitt fyrir að fyrirtækið safni og vinni úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins.
- yerbaice.is mun ekki undir neinum kringumstæðum geyma neinar kreditkorta upplýsingar kaupanda, þar sem kaupandi fer sjálfkrafa inná örugga greiðslusíðu verifone og gengur frá greiðslu fyrir kaupum þar.
- Aðgangur þinn og notkun á yerbaice.is er háð skilmálum og skilyrðum sem koma fram í þessari tikynningu um lagaleg atriði. Ef þú samþykkir ekki þessa skilmála, skaltu ekki nota þessa síðu. Þessir skilmálar geta breyst frá einum tíma til annars án fyrirvara.
15. Úrlausn vafamála
- Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt.
- Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Neytendasamtökin.
- Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .
16. Þjónusta og upplýsingar
- Ef þú hefur spurningar um innihald eða efni heimasíðunnar er þér velkomið að hafa samband við okkur yerbaice@gmail.com. Við munum svara öllum þínum fyrirspurnum með ánægju innan 2 virkra daga
17. Trúnaður (Öryggisskilmálar)
- Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
18. Lög og varnarþing
- Skilmálar okkar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmálanna skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavík.